Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Njarðvík segir upp leikmönnum
Miðvikudagur 8. október 2008 kl. 10:46

Njarðvík segir upp leikmönnum

Stjórn körfuknattleiksdeildar UMFN fundaði í gærkvöldi um ástandið sem hefur skapast á undanförnum dögum.  Er skemmst frá því að segja að ákveðið var að segja upp samningum við þá erlendu leikmenn sem voru á mála hjá félaginu.  Um er að ræða þá Heath Sitton, Slobodan Subasic ásamt Íranum Colin O´Reilly sem var til reynslu.

Stjórnin sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

Í ljósi aðstæðna sem hafa skapast í þjóðfélaginu undanfarið, sér stjórn kkd Njarðvíkur sér ekki annað fært en að segja upp samningum við þá erlendu leikmenn sem eru á mála hjá félaginu.  Heath Sitton ásamt Slobodan Subasic hafa staðið sig mjög vel í þeim leikjum sem þeir hafa leikið og verið félaginu til sóma.  Þeir féllu vel inn í hópinn og ríkti eftirvænting meðal okkar með þá innanborðs fyrir komandi tímabil.  Því harmar stjórnin mjög að þurfa að grípa til þessara aðgerða.  Sömu sögu má segja um írska landsliðsmannin Colin O´Reilly, sem er dengur góður og hefði án efa sómt sér vel í leikmannahópnum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024