Íþróttir

  • Njarðvík rúllaði yfir KFR í Lengjunni
    Njarðvík hélt hreinu í Reykjaneshöllinni í gær
  • Njarðvík rúllaði yfir KFR í Lengjunni
    Þeir Róbert Ólafsson (annar frá vinstri) og Óðinn Jóhannsson (annar frá hægri) skoruðu báðir í sínum fyrsta leik.
Föstudagur 6. mars 2015 kl. 12:01

Njarðvík rúllaði yfir KFR í Lengjunni

Njarðvíkingar áttu ekki í teljandi vandræðum með lið KFR í fyrsta leik sínum í B deild Lengjubikarsins í gærkvöldi og unnu afar sannfærandi 6-0 sigur.

Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni en áhorfendur þurtfu að bíða alla leið inn í seinni hálfleikinn eftir fyrsta markinu en það gerði Theodór Guðni Halldórsson á 50. mínútu og var þá stíflan rofin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Arnór Svansson, Brynjar Freyr Garðarsson, Óðinn Jóhannsson, Róbert Örn Ólafsson og  Þorgils Gauti Halldórsson  bættu allir við einu marki hver áður en lokaflautið gall og innsigluðu góða byrjun þeirra grænklæddu í Lengjubikarnum þetta árið .

Njarðvíkingar mæta næst liði KV í Egilshöll þann 19. mars.