HSS
HSS

Íþróttir

Njarðvík og Reynir töpuðu: Grindavík rígheldur í toppsætið
Föstudagur 15. júní 2007 kl. 22:50

Njarðvík og Reynir töpuðu: Grindavík rígheldur í toppsætið

Öll Suðurnesjaliðin í 1. deild karla í knattspyrnu léku í kvöld í 6. umferð deildarinnar. Grindvíkingar styrktu stöðu sína á toppnum en Njarðvíkingar steinlágu í höfuðborginni og Reynismenn máttu sætta sig við ósigur Sparisjóðsvellinum.

 

Njarðvíkingar hvíldu marga af lykilmönnum sínum á dögunum í bikarleiknum gegn Fjölni sem lauk með 2-1 sigri piltanna úr Grafarvogi. Í kvöld voru ,,lykilmennirnir” mættir til leiks í Njarðvíkurliðinu en vera þeirra á vellinum hefur greinilega ekki skilað tilætluðum árangri. Hjörtur Hjartarson gerði tvö mörk fyrir Þrótt Reykjavík í kvöld og Rafn Haraldsson gerði einnig tvö mörk en lokatölur leiksins voru 4-0 Þrótti í vil og nú eru Njarðvíkingar í ellefta og næst neðsta sæti deildarinnar með 3 stig.

 

Grindvíkingar gerðu góða ferð í höfuðstað Norðursins og nældu sér í 3 stig með 2-3 sigri á Þórsurum. Þeir Jóhann Helgason og Goran Vujic gerðu sín hvor tvö mörkin fyrir Grindvíkinga. Gulir og glaðir eru efstir í 1. deildinni með 16 stig og eru á góðri leið með að láta spá þjálfara og leikmanna fyrir leiktímabilið verða að veruleika en þeim var spáð 1. sæti í deildinni.

 

Reynismenn fengu vægt kjaftshögg á heimavelli í kvöld þegar Jakob Spansberg Jensen gerði þrennu á Sparisjóðsvellinum og þar á meðal var sigurmark Leiknismanna sem kom á 81. mínútu leiksins. Gestirnir úr Leikni komust í 1-0 á 55. mínútu en Guðmundur Gísli Gunnarsson jafnaði metin á 61. mínútu. Hjörtur Fjeldsted kom heimamönnum í 2-1 á 67. mínútu en Spansberg jafnaði metin í 2-2 á 77. mínútu. Þrennan var svo fullkomnuð hjá Spansberg á 81. mínútu og þriðji ósigur Sandgerðinga í deildinni í röð því staðreynd.

 

Staðan í deildinni

 

VF-mynd/ [email protected] - Paul McShane og félagar í Grindavík hafa ríka ástæðu til þess að fagna þessa dagana en þeir eru á blússandi siglingu og ætla sér klárlega að leika í Landsbankadeidlinni á næstu leiktíð. Grannar þeirra úr Njarðvík og Sandgerði róa nú lífróður.

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn