Bygg
Bygg

Íþróttir

Njarðvík og Reynir eru á botninum
Miðvikudagur 9. júlí 2014 kl. 09:05

Njarðvík og Reynir eru á botninum

Bæði lið töpuðu í gær

Njarðvíkingar og Reynismenn sitja í fallsætum 2. deildar karla í knattspyrnu. Njarðvíkingar eru á botninum með fjögur stig en þeir töpuðu gegn KF 3-1 á útivelli í gær, en það var Stefán Birgir Jóhannesson sem skoraði mark Njarðvíkinga í leiknum.

Sandgerðingar fengu Reyni/Dalvík í heimsókn á N1-völlinn í Sandgerði þar sem gestirnir höfðu 1-2 sigur. Árni Páll Höskuldsson skoraði mark Sandgerðinga í leiknum. Sandgerðingar eru sæti ofar en Njarðvíkingar í deildinni með fimm stig. Bæði lið eru sem stendur í bullandi fallbaráttu og er útlitið nokkuð dökkt hjá Suðurnesjaliðunum að svo stöddu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Staðan í deildinni: