Njarðvík og Keflavík unnu leiki sína

Valur og Sigurður Ingimundarsynir leiddu saman lærisveina sína í Sláturhúsinu og var leikurinn nokkuð jafn framan af. Í öðrum leikhluta fóru heimamenn svo að síga framúr og höfðu 13 stiga forskot í hálfleik, 46-33.
Sigurinn var aldrei í hættu í seinni hálfleik og endaði eins og áður sagði í 27 stiga mun, 94-67.
Tölfræði leiksins
Njarðvíkingar lentu í töfum á leið sinni norður á Sauðárkrók til viðureignarinnar við Tindastól og voru ekki komnir í hús fyrr en 10 mínútur voru til leiks. Eitthvað virtist ferðalagið hafa setið í mannskapnum því heimamenn höfðu naumt forskot fram að hálfleik þar sem staðan var 43-41.
Þá hrukku Njarðvíkingar í gang í sókninni og voru komnir með 8 stiga forskot fyrir síðasta leikhluta, 64-72. Þar var nokkuð jafnræði með liðunum, en munurinn í lokin var 10 stig, 85-95.
Tölfræði leiksins
Mynd úr safni VF