Njarðvík og Keflavík mætast í Bikarkeppni KKÍ
Bikarmeistarar Keflavíkur lentu á móti grönnum sínum frá Njarðvík þegar dregið var til 8-liða úrslita í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í dag. Í kvennaflokki fengu Keflvíkingar einnig sterka mótherja þar sem lið ÍS kom uppúr pottinum sem mótherji bikarmeistaranna.
Þá er ljóst að lið úr 1. deild mun leika í 4-liða úrslitum karla og lið úr 2. deild í 4-liða úrslitum kvenna.
Svona var drátturinn:
8-liða úrslit konur
Breiðablik - Grindavík
Keflavík - ÍS
Laugdælir - Tindastóll
Haukar - Njarðvík
8-liða úrslit karlar
Fjölnir - Skallagrímur
Hamar/Selfoss - Grindavík
Keflavík - Njarðvík
Höttur - Breiðablik
Leikirnir fara fram helgina 8.-9. janúar.