Bygg
Bygg

Íþróttir

Njarðvík og Keflavík áfram í bikarnum: Gulir úr leik
Mánudagur 10. desember 2007 kl. 09:31

Njarðvík og Keflavík áfram í bikarnum: Gulir úr leik

16 liða úrslitum í Lýsingarbikarkeppni karla og kvenna lauk um helgina. Keflavík og Grindavík komust örugglega áfram í kvennaflokki sem og Njarðvík og Keflavík í karlaflokki en Grindavík mátti sætta sig við að detta út úr Lýsingarbikarnum í ár eftir 104-103 ósigur gegn Íslandsmeisturum KR í gærkvöldi.

 

Leikur KR og Grindavíkur var gríðarlega spennandi og var staðan 104-103 þegar 8 sekúndur voru til leiksloka. Grindvíkingar áttu síðustu sókn leiksins en þeim tókst ekki að nýta þessar átta sekúndur og því höfðu KR-ingar sigur. Leikur liðanna var frábær skemmtun þar sem mikið var skorað og töluverður hraði einkenndi leikinn.

 

Keflavík gerði góða ferð Norður á Sauðárkrók og lögðu heimamenn í Tindastól 94-105 þar sem Bobby Walker gerði 28 stig fyrir Keflavík.

 

Njarðvík lagði Stjörnuna í Ásgarði 86-104 og gerði Damon Bailey 31 stig fyrir Njarðvíkinga og þar af 19 stig í fyrsta leikhluta.

 

Dregið verður í 8 liða úrslit í karla- og kvennaflokki síðar í þessari viku en þau lið sem komin eru áfram eru eftirfarandi:

 

Kvennaflokkur:

 

Keflavík

Grindavík

Haukar

KR

Hamar

Fjölnir

Snæfell

Valur

 

Karlaflokkur:

 

Keflavík

Grindavík

Njarðvík

ÍR

Fjölnir

Þór Þorlákshöfn

KR

Snæfell

 

VF-Mynd/ [email protected] Þorleifur Ólafsson lék vel í Grindavíkurliðinu í gær en sigurinn féll ekki Grindavíkurmegin að þessu sinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn