Íþróttir

Njarðvík með sigur í Sláturhúsinu
Njarðvíkingurinn Aníta Carter Kristmundsdóttir. [email protected]
Miðvikudagur 22. janúar 2014 kl. 21:55

Njarðvík með sigur í Sláturhúsinu

Nokkuð var um óvænt úrslit í kvennakörfunn í kvöld en Njarðvíkingar gerðu sér lítið fyrir og unnu Keflvíkinga á útivelli í Domino's deild kvenna. Liðin áttust við á mánudag í bikarnum en þá unnu Keflvíkinga nokkuð örugglega. Þær grænklæddu ætluðu ekki að láta slíkt hið sama gerast í kvöld og unnu 57-66 sigur.

Grindvíkingar endurheimtu Pálínu Gunnlaugsdóttur aftur eftir langa fjarveru en það dugði ekki til gegn Hamarskonum í Röstinni í kvöld. Lokatölur í Grindavík 79-92 fyrir gestina.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Eftir leiki kvöldsins munar aðeins tveimur stigum á Njarðvíkingum a botninum og Grindvíkingum í sætinu fyrir ofan. Keflvíkinga eru sem fyrr í 3. sæti.

Tölfræðin úr leikjum kvöldsins.

Keflavík-Njarðvík 57-66 (12-16, 14-11, 15-15, 16-24)

Keflavík: Porsche Landry 19/6 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 14/7 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 6/9 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 5/9 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 5, Bríet Sif Hinriksdóttir 5/7 fráköst, Lovísa Falsdóttir 3/4 fráköst, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 0, Kristrún Björgvinsdóttir 0, Thelma Dís Ágústsdóttir 0, Elfa Falsdottir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.

Njarðvík: Guðlaug Björt Júlíusdóttir 21, Nikitta Gartrell 16/12 fráköst, Sara Dögg Margeirsdóttir 6, Heiða B. Valdimarsdóttir 6/4 fráköst, Ásdís Vala Freysdóttir 6/5 fráköst, Ína María Einarsdóttir 5, Andrea Björt Ólafsdóttir 4/5 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 2/5 fráköst, Emelía Ósk Grétarsdóttir 0, Aníta Carter Kristmundsdóttir 0, Guðbjörg Ósk Einarsdóttir 0, Erna Hákonardóttir 0.

Grindavík-Hamar 79-92 (20-25, 16-13, 23-28, 20-26)

Grindavík: Blanca Lutley 25/9 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 17, María Ben Erlingsdóttir 16/6 fráköst, Helga Rut Hallgrímsdóttir 10/10 fráköst, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 4/9 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 3/9 stoðsendingar, Jeanne Lois Figeroa Sicat 2, Katrín Ösp Eyberg 2, Mary Jean Lerry F. Sicat 0, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 0, Julia Lane Figueroa Sicat 0, Marín Rós Karlsdóttir 0.
 

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar