Hár- og snyrtistofa Orkusystra
Hár- og snyrtistofa Orkusystra

Íþróttir

Njarðvík með jafntefli í Beiðholtinu
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 20. júní 2025 kl. 23:05

Njarðvík með jafntefli í Beiðholtinu

Víðir tapaði í 2. deildinni

Njarðvíkingar mættu í Breiðholtið í Reykjavík í kvöld og mættu heimamönnum í Leikni. Eftir að hafa náð forystunni rétt fyrir hálfleik, misstu Njarðvíkingar leikinn í jafntefli á 89. mínútu. Eftir leikin eru Njarðvíkingar áfram í öðru sæti, einu stigi á eftir ÍR sem á leik til góða.
Grindavík leikur á morgun kl. 16 á heimavelli á móti Völsungi en Keflvíkingar stíga ekki út á dansgólfið fyrr en á sunnudag kl. 18:15, mæta þá toppliði ÍR.
Lengjudeild karla

Það var Valdimar Jóhannsson sem skoraði mark Njarðvíkur í leiknum, skömmu fyrir hálfleik og minnstu munaði að Njarðvíkingar héldu stigunum þremur en Leiknir eins og áður sagði, á 89. mínútu og 1-1 lokaniðurstaðan.

Grindavík getur komið sér í fjórða sæti með sigri á móti Völsungi en þeir hafa leikið tveimur leikjum minna en leikjahæstu liðin. Hinn leikurinn sem þeir eiga inni er einmitt Suðurnesjaslagur við Keflvíkinga, sem verða hreinlega að vinna ÍR til að blanda sér í baráttuna en sjö stigum munar á ÍR og Keflavík fyrir leikinn á sunnudag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

2. deild karla

Víðismenn voru meðal fjögurra liða sem hóf 9. umferð 2. deildar en þeir heimsóttu KFG (Knattspyrnufélag Garðabæjar) en þurftu að lúta í gras, 2-1. Það var Haraldur Smári Ingason sem jafnaði fyrir Víði á 51. mínútu eftir að KFG hafði komist yfir á 49. mínútu en það dugði ekki og sigurmark KFG kom á 75. mínútu. Víðismenn næstsíðasta sæti með 8 stig en mörg lið eru í kringum þá og til að mynda eru bara fjögur stig upp í 6. sætið.

Þróttur Vogum leikur á morgun, mæta þá Kormáki/Hvöt á Vogaídýfuvellinum. 

3. deild karla

Í 3. deild gerðu Reynismenn 0-0 jafntefli á útivelli á móti Augnablik og eru í 5. sæti með 14 stig en Augnablik er á toppnum með 21 stig.