Njarðvík lagði tíu Þróttara
Njarðvíkingar sóttu dýrmæt þrjú stig í Lengjudeild karla í kvöld þegar liðið lagði Þrótt Reykjavík 1–0 á JBÓ-vellinum í Njarðvík.
Leikurinn einkenndist af töluverðum barningi. Línur leiksins breyttust á 32. mínútu þegar Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, fékk beint rautt spjald hjá Gunnari Frey Róbertssyni dómara fyrir harkalega tveggja fóta tæklingu.
Einum manni fleiri sóttu Njarðvíkingar stíft það sem eftir lifði leiks. Það var svo loksins á 73. mínútu sem þeir brutu ísinn. Alexander Helgi átti þá fyrirgjöf, Símon Logi Thasaphong skallaði boltann á Oumar Diouck sem kláraði færið af öryggi, 1–0 fyrir Njarðvík.
Þrótturum tókst lítið að ógna eftir þetta og Njarðvík sigldi verðskulduðum sigri í höfn.





