HSS
HSS

Íþróttir

Sunnudagur 13. janúar 2008 kl. 21:26

Njarðvík lagði KR: Keflavík úr leik

Í kvöld lauk 8-liða úrslitum karla og kvenna í Lýsingarbikarnum í körfuknattleik þar sem Njarðvíkingar slóu út Íslandsmeistara KR og Keflavíkingar máttu sætta sig við ósigur í Stykkishólmi gegn Snæfellingum.

 

Úrslit kvöldsins í Lýsingarbikarnum:

 

Njarðvík 106-90 KR

Snæfell 86-84 Keflavík

Skallagrímur 83-80 ÍR

Fjölnir lagði Þór Þorlákshöfn í gær og því eru eftirfarandi lið í undanúrslitum Lýsingarbikarsins:

Njarðvík, Snæfell, Skallagrímur og Fjölnir

 

Þá máttu Grindvíkingar sætta sig við ósigur í Iceland Express deildinni er þeir töpuðu gegn Þór Akureyri á Akureyri 104-98 en þeir léku án miðherja síns Igors Beljanski sem á við meiðsli að stríða.

 

Þá er einnig ljóst hvaða lið leika til undanúrslita í kvennaflokki en það eru Keflavík, Haukar, Grindavík og Fjölnir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn