Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Njarðvík lætur Arnar fara
Þrátt fyrir að hafa komið með krafti inn í félagið á síðasta ári hafa leiðir Arnars og Njarðvíkur skilið. Mynd úr safni VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 17. júlí 2023 kl. 00:29

Njarðvík lætur Arnar fara

Knattspyrnudeild Njarðvíkur og Arnar Hallsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa komist að samkomulagi um starfslok Arnars hjá félaginu. Gengi Njarðvíkur hefur ekki verið í takt við væntingar og því ætti þetta að koma fáum á óvart.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Njarðvíkur, þar segir jafnframt:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Arnar kom að krafti inn í Njarðvík í september sl. með spennandi hugmyndir fyrir félagið.

Njarðvík ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu en stjórn og Arnar eru sammála því að árangur liðsins hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er sumri. Í ljósi stöðunnar telur stjórn deildarinnar það nauðsynlegt að gera breytingar.

Ákvörðun sem þessi er bæði þung og erfið en við viljum nýta tækifærið til þess að þakka Arnari fyrir sitt framlag til félagsins. Arnar er hreinn og beinn og hefur samstarfið við Arnar verið heiðarlegt frá fyrsta degi. Þrátt fyrir stuttan tíma hefur hann skilið margt eftir sig hjá félagi sem er á uppleið.

Við þökkum Arnari fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar í sínum verkefnum.“

Njarðvík er sem stendur í fallsæti Lengjudeildar karla með átta stig eftir tólf umferðir. Eftir sex umferðir höfðu Njarðvíkingar sex stig og hafa því einungis landað tveimur stigum í síðustu sex leikjum.