Njarðvík Íslandsmeistari B-liða í körfu
Njarðvík tryggði sér Íslandsmeistaratitil B-liða í úrslitaleik 2. deild karla í körfu þann 26. apríl sl. Leikurinn fór fram í Ljónagryfjunni en Njarðvíkingar enduðu efstir í deildinni með 15 sigra og 3 töp.
Í liði Njarðvíkur voru gamlar kempur og landsliðshetjur en Njarðvík leiddi 22-15 eftir sjö mínútur en eftir það skipti Stjarnan yfir í svæðisvörn sem virtist slá heimamenn út af laginu og gestirnir frá Garðabænum áttu 14-2 kafla.
Heimamenn leiddu allan annan hluta og Magnús Gunnarsson lokaði hálfleiknum með þristi og staðan 44-42 í hálfleik fyrir Njarðvík. Í þriðja leikhluta virtist vera komin þreyta í heimamenn en þá skipti Halldór Karlsson bekknum sínum inn og náðu Njarðvíkingar 14 stiga forystu í þriðja leikhluta sem þeir héldu út leikinn.
Lokatölur leiksins voru 82-65 með sigri Njarðvíkinga.
Stigaskor Njarðvíkinga:
Magnús Gunnarsson 29 stig, Hjörtur Einarsson 24 stig, Páll Vilbergsson 12 stig, Páll Kristinsson 10 stig, Grétar Garðarsson 4 stig, Arnar Freyr Jónsson 3 stig.