Bygg
Bygg

Íþróttir

Njarðvík heimsækir Hamar í kvöld - Rútuferðir á leikinn
Fimmtudagur 24. mars 2011 kl. 10:04

Njarðvík heimsækir Hamar í kvöld - Rútuferðir á leikinn

Njarðvíkurstúlkur heimsækja Hamar í Hveragerði og leika 3. leikinn í einvígi liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í kvöld. Staðan í einvíginu er 1-1 og ljós að hart verður barist í þessum leik en Njarðvík átti glæsilegan leik á mánudaginn og jafnaði einvígið með sigri 86-78.

Stuðningsmenn Njarðvíkur ætla að fjölmenna í rútur á leikinn og verður lagt af stað til Hveragerðis stundvíslega kl. 17:45 en aðeins kostar rútufarið 500kr. Fólk er hvatt til að fjölmenna á leikinn til að styðja stúlkurnar til sigurs en þetta er mikilvægasti leikur liðsins á tímabilinu hingað til.

Bílakjarninn
Bílakjarninn