Njarðvík gerði jafntefli á Seyðisfirði
Njarðvík gerði 1:1 jafntefli við Huginn frá Seyðisfirði í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu á laugardaginn. Leikurinn fór fram á Seyðisfirði og var fyrsti leikur þessara liða á Íslandsmótinu í sumar. Í hálfleik var staðan 1:0 fyrir Huginn. Njarðvíkingar höfðu yfirhöndinna allan seinnihálfleik og eins og í þeim fyrri átti Njarðvík margar góða sóknir en vantaði alltaf herslumunin á að koma boltanum í netið. Á 78 mín kom svo jöfnunarmarkið og það gerði Ingibergur Kort Sigurðsson með skalla eftir hornspyrnu.