Njarðvík flengdi Keflavík B
Njarðvíkingar tryggðu sig áfram í Powerade bikarnum nú í kvöld með sigri á B-liði þeirra Keflvíkinga sem að megninu til er skipað liðsmönnum úr Hraðlestinni sálugu. Svo fór eins og kannski flestir bjuggust við að Njarðvíkingar sigruðu leikinn nokkuð auðveldlega 130-64.
Njarðvíkingar tóku sér enga sénsa í þessum leik og spiluðu að ágætis krafti framan af leik. Gaman að var að sjá til allflestra leikmanna Keflavíkur aftur á parketinu þar sem þeir virtust þrátt fyrir stórtap skemmta sér ágætlega og sýndu þeir þeim fjölmörgu áhorfendum sem mættu í Toyotahöllina gamla takta sem virðast gleymast seint.
Elentínus Margeirsson einn af ungviðunum í liði Keflavíkur var stigahæstur þeirra með 15 stig og næstur honum var baráttuhundurinn Albert Óskarsson sem setti niður 13 punkta ásamt því að rífa niður 7 fráköst.
Aðstoðarþjálfari Keflavíkurliðsins var Guðmundur Steinarsson og er þetta ekki fyrsta skiptið sem hann sést á bekknum hjá körfuknattleiksliði Keflavíkur í vetur. Þykir þetta renna skotheldum stoðum undir það að hann ætli sér eitthvað annað en að spila knattspyrnu næsta sumar.
Keflavík B-Njarðvík 64-130 (11-30, 17-39, 18-29, 18-32)
Keflavík B: Elentínus Margeirsson 15, Albert Óskarsson 13/7 fráköst, Guðjón Skúlason 8, Falur Jóhann Harðarson 6, Sigurður Ingimundarson 5/4 fráköst, Jón Nordal Hafsteinsson 4, Gunnar Einarsson 4/6 fráköst, Sverrir Þór Sverrisson 3/5 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 3, Davíð Þór Jónsson 2/4 fráköst, Hjörtur Harðarson 1, Einar Einarsson 0.
Njarðvík: Hjörtur Hrafn Einarsson 22/5 fráköst, Marcus Van 17/12 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 16/7 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 16/4 fráköst, Nigel Moore 15/4 fráköst/5 stoðsendingar, Ágúst Orrason 15, Elvar Már Friðriksson 12/7 stoðsendingar, Magnús Már Traustason 6/4 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 6/9 fráköst, Óli Ragnar Alexandersson 5/5 fráköst/5 stoðsendingar.