Íþróttir

Njarðvík enn án sigurs
Miðvikudagur 14. mars 2018 kl. 22:12

Njarðvík enn án sigurs

Njarðvík mætti Snæfelli í Domino´s-deild kvenna í körfu í kvöld og endaði leikurinn með þrettán stiga tapi Njarðvíkur og lokatölur leiksins voru 87-71.
25. umferð deildarinnar fór fram í kvöld og hefur lið Njarðvíkur ekki enn tryggt sér sigur í einum deildarleik í vetur.

Shalonda R. Winton fór mikinn í liði Njarðvíkur eins og svo oft áður og skoraði 28 stig, María Jónsdóttir var með 10 stig ásamt  Hrund Skúladóttur og  Björk Gunnarsdóttir skoraði 8 stig.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024