Njarðvík á toppnum
Njarðvík vann góðan útisigur á Stjörnunni, 0-1, í annari umferð 1. deildar í kvöld.
Alfreð Jóhannsson skoraði eina mark leiksins á 70. mín, en Njarðvíkingar urðu fyrir blóðtöku þegar þeir misstu tvo menn í meiðsli í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn Bjarni Sæmundsson fór af leikvelli eftir um 15 mín leik og markvörður liðsins, Friðrik Árnason, var fluttur burt með sjúkrabíl eftir samstuð við sóknarmann Stjörnunnar skömmu síðar.
Leikurinn var í heildina tilþrifalítill og setti mikil rigning svip sinn á spilið. Njarðvíkingar vörðust vel og lentu aldrei í teljandi vandræðum með Stjörumenn sem tefldu meðal annars fram hinum góðkunna Mihaljo Bibercic.
Njarðvíkingar hafa því unnið báða leiki sína og eru á toppi 1. deildarinnar