Miðvikudagur 5. mars 2003 kl. 21:21
Nína Ósk íþróttamaður Sandgerðis

Val á íþróttamanni Sandgerðis fór fram í golfskála Golfklúbbs Sandgerðis í kvöld og var vel mætt. Tveir íþróttamenn úr Sandgerði þóttu hafa skarað fram úr. Nína Ósk Kristinsdóttir úr knattspyrnuliði RKV og Sigurður Jónsson golfari úr Golfklúbbi Sandgerðis voru tilnefnd og hlutu þau viðurkenningu að launum. Það var svo Nína Ósk sem hlaut nafnbótina íþróttamaður Sandgerðis 2003 en hún er vel að þessum heiðri komin enda átti hún frábært tímabil með RKV í sumar.Nína Ósk sem er á 18. ári spilaði mjög vel í sumar í framlínu RKV þar sem hún skoraði 18 mörk í 13 leikjum. Hún var valin í U-17 ára landslið Íslands fyrir vikið og er talin ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.