Nína Ósk hætt knattspyrnuiðkun
Knattspyrnukonan Nína Ósk Kristinsdóttir frá Sandgerði er hætt knattspyrnuiðkun en þetta kemur fram í samtali Elísabetar Gunnarsdóttur þjálfara
Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaknattspyrnu annað árið í röð í gærkvöldi og í viðtali við fotbolti.net sagði Elísabet að Nína hefði leikið sinn síðasta leik í gær því hún hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þá mun Nína ekki taka þátt í Evrópukeppninni með Val í október.
Nína átti góðu gengi að fagna með Val í sumar og gerði hún 15 mörk í jafn mörgum leikjum með liðinu. Nína á að baki 6 A-landsleiki sem hún lék alla árið 2004 og í þeim gerði hún eitt mark.
Heimild: www.fotbolti.net
VF-Mynd/ Úr safni - Nína í leik með Keflavík á síðustu leiktíð.