Nettómótinu lokið
Stórmóti Njarðvíkur og Keflavíkur, Nettómótinu lauk í gær. Mótshaldarar eru sammála um að mótið hafið tekist vel í alla staði. Mótið var það fimmta í röðinni sem Barna- og unglingaráð Keflavíkur og Njarðvíkur halda saman í 5. flokki á þessum árstíma.
Rúmlega 500 keppendur frá tíu félögum tóku þátt í mótinu. Samtals 186 leikir fóru fram laugardag og sunnudag.
Fyrir utan stuðið á fótboltavellinum var boðið upp á ýmsa skemmtun, þar sem bar hæðst sundlaugarpartý sem fór fram í Vatnaveröld. Í sundlauginni skemmtu keppendur sér vel undir tónlist skemmtiatriði frá grínistanum Ara Eldjárn.
Hægt er að nálgast öll úrslit, upplýsingar og myndir um mótið á heimasíðu mótsins www.umfn.is/reykjaneshallarmotid.
Mótshaldarar vilja þakka Nettó fyrir stuðninginn, Reykjanesbæ, Langbest, starfsfólki Reykjaneshallar og í íþróttahúsinu í Keflavík fyrir afnot af þeirra húsnæði. Einnig öllu þeim félögum sem tóku þátt, iðkendum þeirra, þjálfurum, liðstjórum og svo þeim fjölda foreldra sem lögðu leið sína í Reykjaneshöll um helgina.
Einnig vilja mótshaldarar þakka foreldrum drengja hjá Keflavík og Njarðvík fyrir aðstoðina við mótið því án hennar er ekki hægt að halda svona velheppnað mót.
Verðlaun á Nettómótinu 2010
Franska deilldin
1. sæti B-úrslit Blikar
3. sæti A-úrslit Þróttur V.
2. sæti A-úrslit Haukar United
1. sæti A-úrslit Fjölnir
Enska deildin
1. sæti B-úrslit Njarðvík
3. sæti A-úrslit Blikar City
2. sæti A-úrslit Blikar
1. sæti A-úrslit Fjölnir
Danska deildin
1. sæti B-úrslit Fjölnir
3. sæti A-úrslit Blikar
2. sæti A-úrslit ÍR
1. sæti A-úrslit Keflavík
Chile deildin
1. sæti B-úrslit Njarðvík
3. sæti A-úrslit Haukar
2. sæti A-úrslit Breiðablik
1. sæti A-úrslit Fjölnir
Brasilíska deildin
1. sæti B-úrslit ÍR
3. sæti A-úrslit FH
2. sæti A-úrslit Blikar
1. sæti A-úrslit Fjölnir
Argentíska deildin
1. sæti B-úrslit Haukar United
3. sæti A-úrslit FH City
2. sæti A-úrslit Breiðablik
1. sæti A-úrslit Fjölnir
Ljósmyndir: Sölvi Logason