Nettómótið tekur við af Samkaupsmótinu - tuttugu ára stórmót yngri körfuboltakrakka
Stærsta og veglegasta körfuboltamót sem haldið er á Íslandi ár hvert fyrir börn, Samkaupsmótið, mun í ár skipta um nafn og kallast Nettómótið. Þó að í raun sé um sama bakhjarl að ræða og áður þá ræður sú staðreynd för að Nettó verslanir Samkaupa eru orðnar helstu flaggskip fyrirtækisins.
KarfaN sem er sameiginlegt hagsmunafélag barna- og unglingaráða Körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur er þessa dagana á fullu í undirbúningi næsta Nettómóts sem verður jafnframt 20 ára afmælismót og fer fram helgina 6-7. mars í Reykjanesbæ.
Það er gott til þess að vita að svarnir andstæðingar á vellinum geti tekið sig saman með þessum hætti og haldið glæsilegt körfuboltamót fyrir krakka á Íslandi, 11 ára og yngri.
Það er samt ekki bara leikinn körfubolti á Nettómótinu þó hann sé vissulega úgangspunktur og hornsteinn mótsins, heldur er um að ræða heildræna fjölskylduhátíð þar sem allir eru sigurvegarar. Þetta er ævintýrahelgi þar sem margir spennandi hlutir gerast. Krakkarnir gista saman og borða morgun- hádegis- og kvöldverð, fara í pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, fá gjafir og kíkja við í stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni, þar sem m.a. má reyna sig í lengsta hoppukastala landsins. Ef þau hafa tíma og þor geta þau líka heimsótt Skessuna í hellinum sem býr við smábátahöfnina í Grófinni.
Orðspor mótsins hefur vaxið jafnt og þétt á á þessum tuttugu árum. Á mótið 2009 mættu 836 þátttakendur til leiks og mynduðu 131 keppnislið. Leiknir voru 313 leikir á 13 völlum í sex íþróttahúsum. Á fimmta hundrað sjálboðaliðar koma að framkvæmd mótsins og þrátt fyrir allan þennan fjölda ungmennafélagsmanna væri svona framkvæmd ekki gerleg, ef ekki kæmi til dýrmætur stuðningur bæjarfélagsins okkar, sem með stuðningi sínum við slíkt verkefni undirstrikar að Reykjanesbær er ÍÞRÓTTABÆR.
Þessa dagana eru sjálfboðaliðar félaganna á fullri ferð í bæjarfélaginu að leita stuðnings fyrirtækja, stofnana og einstaklinga við mótshaldið. Við biðjum alla sem kunna að verða á vegi þeirra að taka vel á móti þeim og sýna samstöðu með okkar tímalausa slagorði: Margt smátt gerir eitt stórt
Með Körfuboltakveðju frá Keflavík, Njarðvík og Nettó.