Þriðjudagur 3. apríl 2012 kl. 09:48
Nes strákarnir sigruðu í boccia
Strákarnir í boccia-liði Nes gerðu sér lítið fyrir og sigruðu sína grein á Íslandsmóti ÍF sem fram fór síðastliðna helgi. Þeir Vilhjálmur, Arnar og Konráð sigruðu keppnina með minnsta mun, eða einu stigi og fögnuðu þeir félagar ákaft í lokin.
Mynd: Vilhjálmur, Arnar og Konráð.