Bygg
Bygg

Íþróttir

Naumur sigur í Sláturhúsinu
Mánudagur 31. október 2005 kl. 17:22

Naumur sigur í Sláturhúsinu

Keflavík vann nauman sigur á baráttuglöðum KR-ingum í Sláturhúsinu í gær.
Lokastaðan var 74-71 eftir að liðin höfðu skipst á að hafa forystuna nær allan leikinn.

AJ Moye, besti maður Keflvíkinga í leiknum, hóf leikinn með látum og skoraði fyrstu 8 stig leiksins. Eftir það hrökk sóknarleikur Keflvíkinga í baklás og ekkert gekk. KR-ingar gengu á lagið og voru með forystu eftir fyrsta leikhluta 14-18.

Í upphafi 2. leikhluta léku Keflvíkingar sterka pressuvörn sem kom þeim aftur inn í leikinn. AJ var sem fyrr allt í öllu í sóknarleiknum og var með 20 stig af 37 stigum Keflvíkinga þegar blásið var til hálfleiks. Þá var staðan 37-29.

Í seinni hálfleik komust KR-ingar aftur yfir með góðri framistöðu Ashley Champion, sem átti stórleik, en hann fékk snemma sína fjórðu villu og mátti sætta sig við að hvíla á bekknum fram á lokakaflann. AJ bar sóknarleik Keflvíkinga á herðum sér sem fyrr, en liðsfélagar hans voru að gera allt of mörg mistök með boltann og þá kom lítið út úr Makedónanum Zlatko Gocevski. Leikurinn var í járnum þegar 3. leikhluta lauk, staðan 50-50.

Champion kom aftur inn í leikinn í síðasta leikhluta og virtist á tímabili ætla að sökkva heimamönnum einn síns liðs, en eftir ótrúlegan leikkafla fékk hann á sig sína 5. villu og þurfti frá að hverfa. Þá var komið að þætti stórskyttunnar Magnúsar Þórs Gunnarssonar sem kláraði leikinn einfaldlega fyrir Keflavík. Hann skoraði 13 stig á skömmum tíma og þar á meðal ótrúlega þriggja stiga körfu og breytti stöðunni í 72-68.

Mikil spenna var á lokakaflanum en Keflvíkingar héldu haus og fögnuðu vel í leikslok þótt margir leikmenn hafi átt betri daga. Þeir mæta næst Lappeenranta í Evrópukeppninni í Sláturhúsinu á fimmtudaginn kemur.

Tölfræði leiksins

VF-Myndir/Þorgils

Bílakjarninn
Bílakjarninn