Bygg
Bygg

Íþróttir

Naumt tap hjá Njarðvík en Grindvíkingar steinlágu
Fimmtudagur 25. febrúar 2016 kl. 23:23

Naumt tap hjá Njarðvík en Grindvíkingar steinlágu

Grindavík ekki inn í úrslitakeppni - Njarðvík án Hauks og Loga

Í kvöld fóru fram fjórir leikir í Domino's deild karla í körfubolta. Bæði Njarðvíkingar og Grindvíkingar máttu þola ósigur í sínum leikjum. Njarðvíkingar léku án Hauks Helga sem er meiddur og Loga Gunnars sem glímir við flensu, en þeir grænu töpuðu með eins stigs mun á heimavelli gegn Stjörnunni. Maciej átti stórleik hjá Njarðvík með 31 stig og Oddur Krisjáns bætti 21 stigi í sarpinn í 71:73 tapi.

Njarðvík-Stjarnan 71-73 (21-19, 13-20, 25-10, 12-24)
Njarðvík: Maciej Stanislav Baginski 31/6 fráköst, Oddur Rúnar Kristjánsson 21/6 fráköst, Jeremy Martez Atkinson 11/5 fráköst/6 stoðsendingar, Snjólfur Marel Stefánsson 4/10 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 4.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindvíkingar sem eru í harðri baráttu um síðasta sætið í úrslitakeppninni steinlágu gegn KR í Vesturbænum, lokatölur 79-60. Grindvíkingar byrjuðu af krafti en svo fór að halla undan fæti eftir fyrsta leikhluta. Liðið skoraði aðeins 22 stig í öllum seinni hálfleik sem er varla ásættanlegt gegn eins sterku liði og KR-ingum. Garcia átti fínan leik með 21 stig og 14 fráköst en aðrir voru langt frá sínu besta hjá Grindavík.

KR-Grindavík 79-60 (15-25, 23-13, 23-14, 18-8)
Grindavík: Charles Wayne Garcia Jr. 21/14 fráköst/5 stoðsendingar, Jón Axel Guðmundsson 14/8 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 12/14 fráköst, Þorleifur Ólafsson 4, Daníel Guðni Guðmundsson 4, Jóhann Árni Ólafsson 3/4 fráköst, Ingvi Þór Guðmundsson 2.

Eftir leikina eru Njarðvíkingar í sjötta sæti á meðan Grindvíkingar eru utan úrslitakeppni í níunda sæti.