Naumt tap fyrir toppliðinu
Það var sérstaklega gott fótboltaveður þegar Njarðvík og Þór mættust á Njarðtaksvellinum á miðvikudagskvöld, logn, sólarlaust og 14 stiga hiti. Leikurinn byrjaði rólega fyrstu mínúturnar og það var ekki fyrr en á 11. mínútu sem að fyrsta markskot leiksins kom. Frans Elvarsson leikmaður Njarðvíkinga átti skot fyrir utan teig eftir að Kristinn Björnsson hafði unnið boltann fyrir miðju vallarhelming gestanna en boltinn silgdi framhjá marki gestanna. Ben Ryan Long átti svo góða skottilraun sem Björn Hákon Sveinsson varði örugglega stuttu síðar. Njarðvíkingar voru sterkari aðilinn í byrjun leiks og áttu 3ju skottilraun sína á 18. mínútu en skot Kristins Björnssonar eftir sendingu frá Andra Freyssyni fór framhjá. Njarðvíkingar juku pressuna á gestina og á 25. mínútu uppskáru þeir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Kristinn Björnsson steig upp en fast skot hans fór beint á Björn Hákon sem greip hann. Gestirnir voru þó óheppnir að setja ekki mark á 26. mínútu þegar að Atli Sigurjónsson fékk boltann í teig heimamanna en skot hans fór í stöng og náðu heimamenn að hreinsa í horn sem ekkert varð úr.
Árni Þór Ármannsson átti ágætis skottilraun á 30. mínútu en fast skot hans yfir markið. Ólafur Jón Jónsson var óheppinn að koma Njarðvíkingum ekki á bragðið á 35. Mínútu. Barningur var hægra megin út við teig gestanna þar sem Ólafur tók boltann á lofti en boltinn fór yfir Björn Hákon og slefaði stöngina á leið sinni framhjá markinu. Njarðvíkingar fengu svo aukaspyrnu á 36. Mínútu sem skot Kristins beint í varnarvegginn sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum af hættusvæðinu. Gestirnir sýndu lífsmerki á 37. Mínútu þegar að þeir áttu skalla að marki sem Ingvar varði út við stöng og útaf. Hornspyrnan fór þó forgörðum hjá gestunum sem höfðu ekki átt mörg marktækifæri til þessa.Þórsarar áttu svo fínan skalla að marki Njarðvíkinga þegar að Jóhann Helgi Hannesson skallaði knöttinn eftir sendingu frá Sveini Elíasi Jónssyni en Ingvar vandanum vaxinn og greip boltann örugglega.Þórsarar voru svo aftur á ferðinni eftir hornspyrnu á 45. Mínútu. Jóhann Helgi Hannesson skallaði boltann eftir fasta hornspyrnu frá Atla Sigurjónssyni en skalli hans rétt yfir slánna út við vinstri stöng.
Staðan var 0 – 0 þegar að Þórður Már Gylfason dómari flautaði til hálfleiks en Njarðvíkingar sterkari aðili leiksins framan af og allt annað að sjá til liðsins en í fyrri leik liðanna fyrir norðan þar sem Þórsarar unnu öruggan sigur.
Þórsarar áttu fyrstu marktilraun leiksins á 50. Mínútu eftir hornspyrnu, boltin barst á fjærstöng þar sem Ármann Pétur Ævarsson fékk boltann með markið og varnarmann í bakið en skottilraun hans aftur fyrir sig sveif hátt yfir. Aleskander Linta fékk áminningu á 53. Mínútu eftir að Frans Elvarsson fór illa með hann en Linta húkkaði sér far með Frans með því að hanga í honum nokkra metra og gult spjald verðskuldað. Andri Fannar Freysson átti svo flott tilþrif þegar að hann tók skæri fyrir utan teig eftir sendingu utan af hægri kanti en skot hans fór framhjá markinu. Aukið líf færðist í leikinn og tóku gestirnir á því að vakna til lífsins og settu aukinn sóknarþunga í leik sinn en Njarðvíkngar voru ávallt tilbúnir að keyra upp völlinn með skyndisóknir sínar. Guiseppe Funicello átti ágætis skottilraun að marki heimamanna á 63.mínútu en skot hans fyrir utan teig fór yfir markið. Gestirnir komust svo yfir á 65. mínútu þegar að Ármann Pétur Ævarsson fékk háan bolta á fjær utan af vinstri kanti og afgreiddi boltann snyrtilega vinstra megin í fjærhornið framhjá Ingvari í markinu. Njarðvíkingar fengu aukaspyrnu á 70.mínútu sem Haraldur Axel Einarsson tók. Föst sending hans niðri inn í teig hafði viðkomu í Ben Ryan Long áður en Björn Hákon greip hann örugglega.Gestirnir spiluðu af meiri ákveðni og festu en uppskáru bara hálffæri sem Njarðvíkngar komu í burtu eða Ingvar greip boltann örugglega þegar á reyndi.
Þegar komið var í uppbótartíma fengu Njarðvíkingar hornspyrnu sem Sverrir Þór Sverrisson tók, boltinn barst út í teig til Ísleifs Guðmdundssonar en viðstöðulaust skot hans var varið og varnarmennirnir voru snöggir að hreinsa boltann af hættusvæði. Þórsarar vour hættulegri síðari hluta leiksins og gerðu það sem heimamönnum tókst ekki og það er að skora mark en þau telja þegar upp er staðið. Þrátt fyrir baráttu heimamanna náðu þeir ekki að jafna leikinn og baráttan um að halda sæti í 1.deild fer harðnandi.
Texti af www.umfn.is
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson