Íþróttir

Nágrannaslagur í Njarðvík með mikilvægu málefni í brennidepli
Föstudagur 10. júlí 2026 kl. 09:15

Nágrannaslagur í Njarðvík með mikilvægu málefni í brennidepli

Það verður væntanlega rafmagnað andrúmsloft á JBÓ-vellinum í Njarðvík í dag þegar heimamenn taka á móti nágrönnum sínum úr Grindavík í 13. umferð Lengjudeildarinnar. Þótt mikið sé undir í sjálfri deildarkeppninni er ljóst að stærsti sigur dagsins mun vinnast utan vallar.

Leikurinn er öllum opinn, en fyrirtækin Epoxy golf og Rafholt hafa tekið sig saman og boðið frítt á leikinn til að tryggja sem mesta stemningu.

Einstakar treyjur á uppboð til styrktar Ingvari

Sérstakt framtak mun einkenna leikinn í dag. Bæði lið munu mæta til leiks í sérhönnuðum Macron-treyjum sem verða einungis notaðar í þessum eina leik.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Treyjurnar verða síðar boðnar upp og mun allur ágóði renna óskiptur til Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans. Ingvar er mjög tengdur íþróttalífinu á Suðurnesjum, uppalinn Njarðvíkingur, og er einn af eigendum Macron-verslunarinnar á svæðinu.

Upplýsingar um styrktarreikning:

Fyrir þá sem vilja leggja Ingvari og fjölskyldu lið strax, er hægt að leggja inn á eftirfarandi reikning:

Reikningsnúmer: 0147-05-400085

Kennitala: 710192-2359

Suðurnesjamenn og aðrir knattspyrnuáhugamenn eru hvattir til að mæta á völlinn í dag, sýna samstöðu og styðja við gott málefni. Leikurinn fer fram kl. 19:15 í Njarðvík.

Bílakjarninn
Bílakjarninn