MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Íþróttir

Myndaveisla úr leik Grindavíkur og Fylkis
Erfitt var að hemja boltann sem var mikið í loftinu í rokinu í Grindavík. VF-myndir: JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 28. maí 2022 kl. 23:51

Myndaveisla úr leik Grindavíkur og Fylkis

Grindavík er komið í þriðja sæti Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir mikilvægan sigur á Fylki. Það var Kristófer Páll Viðarsson sem skoraði sigurmarkið með glæsilegri aukaspyrnu á 57. mínútu.
Grindavík er komið yfir.

Ekki er hægt að skrifa sigurinn alfarið á Kristófer því öflugur varnarleikur Grindvíkinga og barátta, auk mikilvægrar markvörslu frá Aroni Degi Birnusyni í lok leiks, átti sinn þátt í sigrinum.

Bakvörðurinn Örvar Logi Örvarsson átti góðan dag og var öruggur í öllu sem hann gerði.
Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Grindvíkinga, tók úr leikbann og því mæddi mikið á þeim Milan Stefáni Jankovic og Óttari Guðlaugssyni sem stýrðu Grindvíkingum til sigurs.

Nánar er hægt að lesa um leikinn með því að smella hér.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari Víkurfrétta, tók meðfylgjandi myndir á leiknum.

Grindavík - Fylkir (1:0) | Lengjudeild karla 28. maí 2022

Bílakjarninn
Bílakjarninn