Myndasafn: Jafnt gegn gömlu herraþjóðinni
sland og Danmörk mættust í veglegri hnefaleikaveislu í gærkvöldi í Hnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ. Þjóðirnar skildu jafnar með fimm sigra hvor. Fjölmargir efnilegir hnefaleikakappar stigu fram á sjónarsviðið og gáfu allt í sína bardaga.
Fjölmenni mætti til að fylgjast með bardögunum og var virkilega gaman að sjá til danska veltivigarmeistarans og Norðurlandameistarans Kenneth Nemming eiga við Stefán Breiðfjörð úr HFH.
Kvöldinu verður gerð nánari skil síðar í Vef TV Víkurfrétta en nú er komið inn myndasafn frá kvöldinu sem hægt er að skoða í ljósmyndasafni Víkurfrétta eða með því að smella hér.
VF-Mynd/ Jón Björn Ólafsson – [email protected] - Andri Már Elvarsson stóð sig vel í fyrsta bardaga gærkvöldsins og lagði Dion Bredhal að velli en Dion er sonur fyrrum heimsmeistarans Jimmi Bredhal.