Mótahald í körfunni liggur áfram niðri
Körfuknattleikssamband Íslands hefur gefið út að frestun á öllu mótahaldi verður áfram haldið til og með 3. nóbember.
Sóttvarnaraðgerðum yfirvalda sem komið var á 7. október hefur nú verið framlengt til og með 3. nóvember en aðgerðirnar eru áfram mun harðari á höfuðborgarsvæðinu en utan þess.
Stjórn og mótanefnd KKÍ hafa því ákveðið að fresta öllum leikjum til og með 3. nóvember. Áfram verður fylgst með þróun mála en vonir standa til að hægt verði að aflétta æfingatakmörkunum á höfuðborgarsvæðinu fljótlega.
Hér að neðan má sjá samantekt á því sem heimilt er að gera samkvæmt reglugerðinni. Von er á sameiginlegum reglum Körfuknattleikssambands Íslands og Handknattleikssamband Íslands um æfingar og keppni þegar þær hafa verið staðfestar af yfirvöldum. Það skal ítrekað að í gildi eru tilmæli frá yfirvöldum að fólk sé ekki að fara til eða frá höfuðborgarsvæðinu nema brýna nauðsyn beri til en íþróttaæfingar falla ekki þar undir.
Endurræsing mótahalds
Ljóst er að mótahaldi KKÍ eru nokkrar skorður settar af landsliðsgluggum FIBA í nóvember. Taka þarf tillit til þessara glugga en ljóst er að vegna sóttkvíar landsliðsmanna mun deildarkeppni hefjast seinna en vanalega að loknum landsleikjagluggum.
Þessa dagana er unnið að „return to play“-leiðbeiningum sem unnar eru á grunni leiðbeininga FIBA og í góðri samvinnu við fræðasamfélagið og fagteymi KKÍ en von er á því að þessar leiðbeiningar verði tilbúnar og gefnar út fyrir vikulok.
Alls hefur 298 deildar- og bikarleikjum verið frestað frá 7. október til og með 3. nóvember en stóra verkefni mótanefndar verður að koma þeim leikjum fyrir svo vel sé. Leikir í Domino's og 1. deildum hafa forgang við endurskipulagningu mótahaldsins en sömuleiðis á eftir að skoða frekar hvað gert verður með deildarleiki í neðri deildum og yngri flokkum. Gert er ráð fyrir að leikið verði upp að jólahátíðinni, allt til 23. desember, og að leikið verður í Domino's-deildunum milli jóla- og nýárs. Jafnframt á eftir að skoða og ákveða hvað gert verður með þá um það bil 400 leiki í fjölliða- og fjölvallamótum sem frestað hefur verið.
Vitað er að talsvert verk er fyrir hendi þegar kemur að endurskipulagningu mótahaldsins en ekki er enn alveg ljóst hvenær mótahaldið kemst í gang að nýju, eða með hvaða hætti það hefjist. Það verður þó tilkynnt sérstaklega þegar þar að kemur.