Mortensen og DeAndre Kane til liðs við Grindavík
Grindavík hefur gert samning við danska leikmanninn Daniel Mortensen um að leika með félaginu á næstu leiktíð í Subway-deild karla. Mortensen hefur leikið hér á landi síðustu tvö tímabil, fyrst með Þór og nú síðast með Haukum. Það er ljóst að Daniel er mikill liðsstyrkur fyrir Grindavík en hann var valinn besti erlendi leikmaður deildarinnar 2022.
Daniel, sem er fæddur árið 1994, er 205 cm hár framherji sem einnig getur leyst stöðu miðherja. Hann teygir völlinn vel en hann er með eindæmum skotviss og hefur verið að skjóta þristum með um 40 prósent nýtingu hér á landi. Síðustu tvö tímabil hefur hann skilað rúmum átján stigum að meðaltali í leik og átta fráköstum.
„Það var smá fundur um hvernig við ætluðum að setja liðið saman og upp kom þetta fallega nafn, Daniel Mortensen. Það var okkur ansi fjarri þegar samtalið fór af stað 16. apríl en í morgun var skrifað undir samning þess efnis að Mortensen muni leika með okkur á næstu leiktíð. Þetta er mjög stór dagur hjá okkur en eins og áður hefur verið sagt að þá ætlum við okkur stærri hluti en á tímabilinu sem var að líða. Ég, ásamt stjórn körfuknattleiksdeildarinnar, erum gríðarlega spennt og stolt í dag,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, í færslu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.
Þá hefur Grindavík einnig samið við bandaríska leikmanninn DeAndre Kane um að leika með félaginu á næstu leiktíð í Subway-deild karla. Kane er með ungverskt vegabréf og mun því leika sem Evrópumaður með Grindavík á komandi tímabili.
DeAndre Kane er fjölhæfur leikmaður sem getur leikið bæði sem bakvörður og framherji. Hann er 33 ára gamall og 196 cm á hæð og á að baki frábæran feril í Evrópu og hefur leikið með félögum í Rússlandi, Þýskalandi, Belgíu, Spáni, Ísrael og Grikklandi. Hann hefur tvívegis orðið meistari í Ísrael með Maccabi Tel Aviv. Eftir frábæran háskólaferil var Kane spáð velgegni í NBA og æfði meðal annars með LA Lakers og Toranto Raptors áður en hann fór til Evrópu.
Kane hefur síðustu ár dvalið í Bandaríkjunum og keppt þar í The Basketball Tournament en það er opið mót sem er sýnt á ESPN þar sem verðlaunafé fyrir sigurliðið nemur einni milljón dala. Kane hefur fjórum sinnum verið í sigurliði í þessu móti.
„Við erum búin að vera lengi á eftir Kane enda er þetta frábær leikmaður sem gæti breytt ansi miklu fyrir okkar lið á næsta tímabili. Það er langt síðan svona stór prófíll hefur komið til okkar og við erum í skýjunum að þetta hafi loksins gengið eftir. Kane hefur alla burði til að vera einn besti leikmaður deildarinnar og við getum ekki beðið eftir að fá hann til okkar,“ er haft eftir Ingibergi, formanni körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.
Frétt og myndir: Facebook-síða UMFG