Bygg
Bygg

Íþróttir

Möggumót Keflavíkur
Miðvikudagur 11. október 2006 kl. 13:24

Möggumót Keflavíkur

Laugardaginn 14. október verður Möggumót fimleikadeildar Keflavíkur haldið í A sal íþróttahússins í Keflavík. Þetta er í þriðja skiptið sem mótið er haldið og heitir það í höfuðið á stofnanda deildarinnar Margréti Einarsdóttur. Mótið er æfingamót fyrir stúlkur á aldrinum 7-10 ára og er í tveimur hlutum.

Í fyrri hlutanum er mótið meira eins og sýning en verður þó í venjulegu keppnisformi. Í seinni hlutanum verður þetta alvörunni keppni þar sem stúlkurnar fá einkunn fyrir hvert áhald. Eitt gestalið verður á mótinu og eru það stúlkur frá fimleikadeild Ármanns. Stúlkurnar á mótinu keppa í 6. þrepi íslenska fimleikastigans og eru þær mislangt komnar með þrepið.

1. hluti B-1, B-2, C-1, C-2, C-3 og C-4  
Stúlkur fæddar 1998-1999

Mæting kl 9:00
Upphitun kl 9:00-9:25
Innmars kl 9:25
Mót hefst kl 9:30
Mót lýkur kl  11:15
Útmars og verðlaunafhending kl 11:15-11:30

2. hluti A-2, A-3, A-4 og Ármann 
Stúlkur fæddar 1996-1999

Mæting kl 11:30
Upphitun kl 11:30-11:50
Innmars kl 11:55
Mót hefst kl 12:00
Mót lýkur kl  14:30
Útmars og verðlaunafhending kl 14:30-14:45

www.keflavik.is

 

VF-mynd/ frá Möggumótinu í fyrra

Bílakjarninn
Bílakjarninn