Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Möggumót á morgun
Fimmtudagur 11. nóvember 2004 kl. 16:20

Möggumót á morgun

Föstudaginn 12. nóvember mun Fimleikadeild Keflavíkur standa fyrir Möggumótinu.  Mótið heitir í höfuðið á Margréti Einarsdóttur stofnanda deildarinnar.

Möggumótið er keppni í 6. þrepi sem er undirbúningsþrep fyrir keppni á mótum Fimleikasambands Íslands. Mótið er haldið til að þjálfa iðkendur í að taka þátt í keppni og einnig til að meta stöðu iðkenda.

Mótið fer fram í Íþróttahúsinu við Sunnubraut í B-sal og hefst það kl. 16.30 og er áætlað að því sé lokið um kl. 18.30. Fjölskyldur og vinir þáttakenda eru hvattir til að mæta og fylgjast með þessum duglegu fimleikastelpum.

Mynd fengin af vefnum fimleikar.is
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024