Misnotuðu víti í tapleik gegn Víkingi
Keflavík tapaði fyrir Víkingi, 1:2, í Bestu deild kvenna í knattspyrnu á HS orku-vellinum í Keflavík í dag.
Gestirnir komust yfir strax á sjöttu mínútu með marki Bergdísar Sveinsdóttur eftir skyndisókn. Tuttugu mínútum síðar fengu Keflvíkingar vítaspyrnu sem Aníta Lind Daníelsdóttir misnotaði. Hún sendi knöttinn yfir markið.
Víkingar bættu við marki á 68. mínútu þegar Linda Líf Boama skoraði eftir stoðsendingu frá Bergdísi Sveinsdóttur. Það var svo undir lok leiks sem Keflavík minnkaði muninn með marki sem Simona Rebekka Meijer skoraði eftir hornspyrnu. Einhver átök urðu um boltann í markinu þegar Kristrún Ýr Hólm hugðist sækja boltann til að koma honum á miðjuna þar sem stutt var til leikslika. Kristrún Ýr fékk gult spjald fyrir ásamt Shaina Faiena Ashouri hjá Víkingi.
Það mátti heyra undir lok leiks að Keflvíkingar voru síður en svo sáttir við dómgæsluna og fannst hallað á sig í leiknum.
Keflavík vermir botnsæti deildarinnar með 9 stig. Víkingur er í 6. sæti eftir leik dagsins.
Myndasafn úr leiknum neðar á síðunni.