Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram og landsliði Íslands, verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 23. febrúar.
Mót þetta hefur verið vel sótt undanfarin ár og mikil ánægja verið á meðal eldri drengja, sem hafa sótt mótið. Aðstandendur viðburðarins, sem kalla sig „vini Ragga Margeirs“ hafa tekið upp þann sið að safna fé og láta afraksturinn ganga til góðs málefnis.
Þetta verður í fimmtánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar, fyrrverandi knattspyrnusnillings, en hann lést langt fyrir aldur fram í febrúar árið 2002.
Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst um kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:30.