Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Föstudagur 23. febrúar 2018 kl. 09:32

Minningarmót Ragnars Margeirssonar

- haldið í fjórtánda sinn á laugardaginn

Hið árlega minningarmót um Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram, verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 24. febrúar. Mót þetta hefur verið vel sótt undanfarin ár og mikil ánægja verið á meðal eldri drengja, sem hafa sótt mótið. Aðstandendur viðburðarins, sem kalla sig „vinir Ragga Margeirs“ hafa tekið upp þann sið að safna fé og láta afraksturinn ganga til góðs málefnis.
 
Þetta verður í fjórtánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar, fyrrverandi knattspyrnusnillings, en hann lést langt fyrir aldur fram í febrúar á árinu 2002.
 
Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:00.
 
- Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32) í tveimur deildum, 35 ára flokkur og 50+ flokkur.
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar
 
Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna af þessu tilefni og styrkja gott málefni, geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 121-05-10026, kt. 180161-4229.
 
HÉR má nálgast dagskrá mótsins.
 
Með boltakveðju
Vinir Ragga Margeirs
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024