HSS
HSS

Íþróttir

Minningarmót Gumma Steins á sunnudag
Föstudagur 4. janúar 2013 kl. 09:14

Minningarmót Gumma Steins á sunnudag

Hið árlega minningarmót um Guðmund Steinsson, fyrsta formann HKR sem lést af slysförum langt um aldur fram, fer fram þann 6. janúar næstkomandi í Íþróttahúsinu við Sunnubraut. Á minningarmótinu munu flestir flokkar félagsins etja kappi sín á milli þar sem gleði og ánægja munu vera aðalsmerki dagsins.

Mótið mun hefjast kl 12:00 með því að 4 flokkur-B mun spila við foreldra barna sem stunda handbolta en þessi viðureign hefur verið æsispennandi síðustu ár en foreldrar unnu í fyrra með minnsta mun eða aðeins einu marki.
Síðan er þriggja liða mót á milli 4. flokks, Meistaraflokks og fyrrverandi handboltastjarna úr Keflavík og Njarðvík auk þess sem yngri flokkar félagsins munu keppa sín á milli.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á heimasíðu félagsins www.hkr.is.