Miklar endurbætur á íþróttasvæði í bígerð
Í Sandgerði eiga heimamenn framtíðarsýn um veglega íþróttahöll en eins og svo mörgu hér á landi hefur framkvæmdum vegna hennar verið slegið á frest í bili vegna aðstæðna í efnahagslífi þjóðarinnar. Engu að síður hefur bæjarfélagið ákveðið að ráðast í verulegar endurbætur á íþróttasvæði bæjarfélagsins enda um atvinnuskapandi verkefni að ræða.
Samhliða endurbótum á fótboltavellinum stendur til að byggja nýja steinsteypta stúku við völlinn og mun hún taka 350 manns í sæti. Gert er ráð fyrir að bygging stúkunnar kosti um 45 milljónir króna. Auk þess verður ráðist í skiptingu á jarðvegi og grasi vallarins fyrir um 10 milljónir króna. Þá er reiknað með að 2,5 milljónir króna fari í girðingar og annan frágang við völlinn.
Hafist verður handa fljótlega og er gert ráð fyrir að ljúka þessum framkvæmdum á árinu.
---
Mynd: Teikning af fyrirhugaðri stúku.