Bygg
Bygg

Íþróttir

Fimmtudagur 20. febrúar 2003 kl. 09:54

Mikilvægur sigur

Njarðvík sigraði Hauka örugglega, 77-62, í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær en staðan í hálfleik var 40:33 heimastúlkum í hag. Njarðvíkurstúlkur höfðu yfirhöndina í leiknum frá upphafi en sigurinn var mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitum. Krystal Scott var stigahæst með 26 stig en Helga Jónasdóttir var þó án efa best á vellinum með 20 stig, 15 fráköst og 4 stolna bolta.Eftir leikinn er Njarðvík í 4. sæti deildarinnar með 16 stig, 6 stigum meira en næsta lið fyrir neðan og því ætti sæti í úrslitakeppninni að vera gulltryggt.
Bílakjarninn
Bílakjarninn