Mikilvægi heimavallarins augljóst
Njarðvíkingar sigruðu KR 89-84 í hörkuspennandi viðureign í Ljónagryfjunni í Njarðvík og Tindastóll tók Keflavík 109-87 á Sauðarkróki. Mikilvægi heimavallarins er augsýnilega mikið og forvitnilegt að sjá hvernig Keflavík og KR svara fyrir sig á þriðjudag.Njarðvíkingar byrjuðu leikinn í kvöld af miklum krafti og komust í 18-0 í fyrsta leikhluta en KR-ingar minnkuðu muninn í 30-22 fyrir lok leikhlutans að mestu fyrir tilstilli Keiths Vassel. Annar leikhluti var jafn en Njarðvíkingar náðu að halda núverandi Íslandsmeisturum í hæfilegri fjarðlægð og staðan 55-44 í hálfleik. Þriðja leikhluta hófu KR-ingar með því að skora sjö stig í röð og var leikurinn í járnum upp frá því og jafnt 71-71 eftir þrjá leikhluta. Í þeim fjórða fóru villuvandræði að hrjá KR og vó það þungt á lokamínútunum er þeir grænklæddu tryggðu sér fyrsta sigurinn á KR í 6 tilraunum 89-84. Brenton Birmingham, Logi Gunnarsson, Jes Hansen og Teitur Örlygsson voru bestir Njarðvíkinga og Friðrik var mikilvægur í fráköstunum í síðasta leikhlutanum. Vassel var yfirburðamaður í KR liðinu og Jonathan Bow sýndi góðan leik. Ólafur Ormsson gekk ekki heill til skógar, né heim aftur, og munaði um minna og Brenton reyndist Jóni Arnóri erfiður ljár í þúfu.