Bygg
Bygg

Íþróttir

Mikilvæg stig fyrir Njarðvíkinga
Fimmtudagur 26. janúar 2012 kl. 21:21

Mikilvæg stig fyrir Njarðvíkinga

Njarðvíkingar unnu góðan sigur á Haukum í botnbaráttu Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 75-85 Njarðvík í vil og fór Cameron Echols mikinn í leiknum fyrir Njarðvíkinga en hann skoraði 26 sig og hirti 20 fráköst.

Gamla kempan Páll Kristinsson var í búning hjá Njarðvíkingum en hann er nýlega byrjaður að æfa á ný eftir að hafa lagt skóna á hilluna frægu í vor.

Gangur leiks (19-24, 21-16, 19-19, 16-26)

Stigin:
Cameron Echols 26/20 fráköst, Travis Holmes 24/7 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 11/3 varin skot, Hjörtur Hrafn Einarsson 8/4 fráköst, Elvar Már Friðriksson 6/9 stoðsendingar, Maciej Stanislav Baginski 5, Rúnar Ingi Erlingsson 3, Óli Ragnar Alexandersson 1, Páll Kristinsson 1

Bílakjarninn
Bílakjarninn