Bygg
Bygg

Íþróttir

Mikill uppgangur hjá Nesi
Sunnudagur 20. janúar 2013 kl. 08:30

Mikill uppgangur hjá Nesi

Jákvæð uppsveifla hjá Íþróttafélaginu Nes á undanförnum mánuðum

Nokkur uppgangur hefur verið hjá Íþróttafélaginu Nes undanfarin misseri. Félagið fagnaði 20 ára afmæli sínu haustið 2011 og í kjölfar þess var ákveðið að blása meira lífi í félagið. Iðkendafjöldi hefur verið að aukast en nú er um 70 manns sem æfa íþróttir hjá félaginu. Tilvera félagsins gefur fötluðum eða einstaklingum með röskun hér á Suðurnesjum tækifæri á að æfa íþróttir og njóta þess sem slík iðkun hefur í för með sér.

„Félagið hefur vaxið og dafnað síðan við héldum upp á 20 ára afmælið,“ segir Katrín Ruth Þorgeirsdóttir við Víkurfréttir. „Við gerðum miklar breytingar á starfi félagsins haustið 2011 og í kjölfarið þá hefur árangur okkar félagsmanna orðið talsvert betri. Nes er mun sýnilegra í mótum. Við höfum alltaf gert góða hluti í boccia sem dæmi og eigum þar marga Íslandsmeistara. Síðastliðið haust urðum við fimmfaldir Íslandsmeistarar í þeirri grein. Við höfum einnig gert fína hluti í frjálsum íþróttum.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hafa bætt sig mikið í sundi

Nes hefur bætt sig mikið í sundi á síðustu mánuðum. Ingi Þór Einarsson, landsliðsþjálfari fatlaðra í sundi, var ráðinn til starfa hjá Nes árið 2011 og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Fjórir iðkendur undir 18 ára aldri hjá Nes náðu landsliðsmörkum á síðasta ári. Þrír þeirra eru í dag hluti af landsliðshópi Íþróttasambands Fatlaðra í sundi. „Það hafði verið nokkur lægð yfir sundinu hjá okkur síðustu ár og við töldum okkur þurfa að spyrna þar við fótum. Árangur okkar fólks hefur fengið athygli og koma Inga Þórs til félagsins hefur haft jákvæð áhrif,“ segir Katrín.

Búast má við að fjölgun verði á iðkendum hjá Nes á komandi misserum. Frá og með áramótum verður tekið við iðkendum niður í fjögur ára aldur. Vöntun hefur verið á íþróttastarfi fyrir fötluð börn á aldrinum 4-6 ára en nú getur þessi aldurshópur hafið æfingar hjá Nesi. „Við munum bjóða upp á æfingar í sundi og frjálsum íþróttum fyrir þennan aldurshóp. Við höfum skynjað að þessi aldurshópur hefur skort tækifæri á að stunda íþróttir og nú verður gerð bragabót á því,“ segir Katrín sem bætir við að Íþróttafélagið Nes sé mun meira en bara íþróttafélag.

„Þetta er ekki bara íþróttafélag heldur líka félagssamtök. Við hittum að hittumst mánaðarlega og reynum að gera eitthvað saman. Það er gott fyrir þennan hóp að eiga stað til að koma saman. Við erum í dag með mjög færa þjálfara og framtíðin hjá félaginu mjög björt.“