Mikill liðstyrkur til Keflavíkurstúlkna
Knattspyrnukonurnar Björg Ásta Þórðardóttir og Inga Lára Jónsdóttir hafa gengið til liðs við lið Keflavíkur á ný eftir nokkurra ára vist í úrvalsdeildarliði Breiðabliks.
Þær stöllur eiga eftir að styrkja hóp Keflavíkur verulega og telur Ásdís Þorgilsdóttir, þjálfari stúlknanna að mikið megi vera ef þær komast ekki upp í 1. deild. „Það þar mikið að klikka til að svo fari. Við lítum björtum augum til sumarsins og vonum að þetta smelli allt hjá okkur.“ Ásdís bætti því við að þær hyggðust ekki styrkja hópinn frekar í sumar. „Þar er vonandi að við komumst upp og svo sjáum við til með framhaldið þegar að því kemur.“
Inga Lára fór til Breiðabliks fyrir tveimur árum og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands síðustu ár. Í samtali við Víkurfréttir sagðist Inga Lára hafa verið komin með nóg af því að keyra á milli, en hinn aukni metnaður sem er í kringum kvennaliðið hafði einnig sitt að segja.
Björg Ásta hefur ekki leikið með Keflvíkingum frá því að deildin var lögð niður á sínum tíma og hóf að leika með Val 1998 og fór tveimur árum síðar til Breiðabliks þar sem hún hefur leikið síðan.
Björg Ásta hefur markað sér sess sem ein sterkasta knattspyrnu kona landsins þrátt fyrir ungan aldur og er fastamaður í A-landsliði Íslands.
Stúlkurnar, sem eru báðar 19 ára, verða í leikmannahópi Keflavíkur sem mætir HK/Víkingi í kvöld.
Myndin er samsett, tekin af vefsíðunni "Stelpublik".