Mikill heiður að fá að spila fyrir landsliðið
Sigurbergur Bjarnason fer til Kína með U-15 landsliðinu í knattspyrnu í ágúst.
Sigurbergur Bjarnason er ungur og efnilegur knattspyrnumaður uppalinn í Njarðvík en hefur verið að spila með Keflavík síðustu ár. Hann er að fara til Kína í ágúst með U-15 landsliðinu til þess að spila á Ólympíuleikum æskunnar. „Það leggst bara mjög vel í mig að fara til Kína, ég er virkilega spenntur fyrir þessu landsliðsverkefni og það er mjög mikill heiður að vera valinn í þetta lið,“ sagði Sigurbergur. Landsliðið vann Armeníu og svo Moldóvíu til þess að komast á Ólympíuleikana. „Ég hef einu sinni áður farið með landsliðinu út og það var til Sviss í fyrra, þá unnum við okkur þátttökurétt til þess að fara til Kína á Ólympíuleikana.“
Hilmar Mcshane er nýr liðsfélagi Sigurbergs í Keflavík en hann fer einnig til Kína með íslenska liðinu. „Við Hilmar erum tveir úr Keflavík sem fara, hann er nýkominn í Keflavík og hann hefur verið gríðarlega mikill liðsstyrkur fyrir okkur.“
Ólympíuleikarnir fara fram í borginni Nanjing og keppendur dvelja í ólympíuþorpi í borginni. „Við förum út 11. ágúst og verðum í ólympíuþorpi þar sem allir sem munu keppa á leikunum munu gista. Þetta er í annað sinn sem Ólympíuleikar æskunnar eru haldnir, en ég er ekki alveg klár á leikskipulaginu.“
Keflvíkingurinn Freyr Sverrisson er þjálfari liðsins en hann hefur 16 ára reynslu sem þjálfari knattspyrnuskóla KSÍ og á tæplega 200 leiki með yngri landsliðum. „Það er frábært að hafa Frey, hann er algjör snillingur, hann hefur farið í mörg landsliðsverkefni og maður getur treyst vel á hann.“
En hvað gera leikmenn liðsins á milli leikja? „Þá erum við bara uppi í herbergi að hlusta á góða tónlist og svo heldur Freyr stundum fyrirlestra. Svo er líka bara mjög góð stemming hjá liðinu, það eru allir félagar og ekkert vesen. Freyr er líka mikill skemmtikraftur, hann kann það alveg.“
Faðir Sigurbergs, Bjarni Jóhannsson er landsþekktur og reynslumikill þjálfari en hann hefur þjálfað lið á borð við Breiðablik, ÍBV, Fylki, Stjörnuna og er að þjálfa KA í dag. „Pabbi er búinn að vera að hjálpa mér virkilega mikið, hann er búinn að vera að kenna mér leikskilninginn í þessum stöðum sem ég er að fara spila í á vellinum. Ég hef fengið mikinn stuðning frá fjölskyldunni, mamma er einnig mjög dugleg að fara með mig á æfingar.“
Sigurbergur er Íslandsmeistari með 4. flokki en nú er hann á yngra ári í 3. flokki. „Það hefur ekki gengið alveg nógu vel hjá okkur í sumar, við erum í næstneðsta sæti með 3 stig, þetta er búið að vera erfitt hjá okkur. Hin liðin eru líka mjög sterk en við þurfum bara að fara að rífa okkur í gang.“ sagði Sigurbergur.