Michael hetja Grindvíkinga
Grindvíkingar hafa sýnt það í gegnum tíðina að þeir eru nánast ódrepandi. Michael Jónsson bjargaði sínum mönnum í kvöld þegar Grindavík gerði 1-1 jafntefli gegn Víkingum í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Viktor Bjarki kom Víkinum í 1-0 en Michael Jónsson jafnaði metin á lokamínútum leiksins með skallamarki.
Um 630 manns voru á vellinum í Grindavík í kvöld en leikurinn fór rólega af stað. Á 9. mínútu bægði Kristján Valdimarsson hættunni frá þegar sóknarmaður Víkinga gerði sig líklega til þess að skjóta að marki. Kristján renndi sér fyrir boltann á síðustu stundu með vel tímasettri tæklingu.
Gestirnir úr Reykjavík voru sprækari framan af fyrri hálfleik og beittu hröðum sóknum en heimamenn í Grindavík héldu boltanum meira þó þeir væru ekki að skapa sér mörg færi.
Á 25. mínútu kom besta færi Grindvíkinga í fyrri hálfleik þegar Ray Jónsson sendi langan bolta fram á Jóhann Þórhallsson en Jóhann vippaði boltanum yfir Ingvar í Víkingsmarkinu en boltinn fór rétt framhjá.
Liðin gengu til búningsklefanna í stöðunni 0-0 eftir að hafa bæði átt þokkaleg færi.
Víkingar voru mun sterkari en heimamenn í upphafi síðari hálfleiks og snemma áttu þeir hættulegan skalla eftir fyrirgjöf sem hafnaði beint í fanginu á Helga markverði Grindavíkur.
Á 59. mínútu kom Viktor Bjarki Arnarsson Víkingum í 1-0 þegar boltinn barst til hans í teignum. Viktor fékk heila eilífð til þess að athafna sig og lagði boltann snyrtilega fram hjá Helga. Víkingur 1-0 Grindavík.Eftir markið var nokkuð jafnt með liðunum en á 71. mínútu áttu Grindvíkingar gott skot að marki sem Ingvar Þór Kale varði glæsilega yfir markið fyrir Víkinga.
Á 90. mínútu voru Grindvíkingar í stórsókn og skot kom að marki sem Ingvar varði en náði ekki að halda boltanum. Í frákastið kom aðvífandi Michael Jónsson og skallaði boltann í markið og jafnaði leikinn, 1-1. Grindvíkingar fögnuðu markinu vel og innilega enda kærkomið stig fyrir þá við botninn í Landsbankadeildinni.
Þetta var fyrsta markið sem Michael hefur gert í efstu deild og var hann að vonum ánægður í leikslok. „Mér tókst að setja mark mitt á leikinn og það var ánægjulegt,“ sagði Michael í leikslok. „Þetta er allt að koma núna hjá okkur en eins og staðan er núna þá er mikil barátta framundan,“ sagði Michael markaskorari.
Grindvíkingar eru nú með 18 stig í 7. sæti deildarinnar og það er hættulega stutt í næstu lið fyrir neðan en á hinn bóginn er sömu sögu að segja um liðin fyrir ofan.
Staðan í deildinni
VF-myndir/ Þorgils