HSS
HSS

Íþróttir

Mete samdi til þriggja ára
Mánudagur 16. október 2006 kl. 10:02

Mete samdi til þriggja ára

Varnarmaðurinn Guðmundur Viðar Mete hefur gert nýjan þriggja ára samning við knattspyrnulið Keflavíkur. Guðmundur átti gott sumar með Keflvíkingum en hann og Kenneth Gustafsson stóðu vaktina í miðvarðastöðu Keflavíkur. Kenneth samdi einnig í sumar til þriggja ára hjá Keflavík svo þeir tveir munu skipa og stjórna varnarlínu Keflavíkur á næstu árum.

Guðmundur gekk í raðir Keflavíkur í fyrra og með tilkomu hans styrktist Keflavíkurvörnin til muna. Þess má geta að á leiktíðinni 2005 fengu Keflvíkingar alls 31 mark á sig í Landsbankadeildinni en í sumar voru þau ekki nema 20 talsins og fækkaði mörkunum því um 11 milli leiktíða.

VF-myndir/ Jón Örvar Arason

 

www.keflavik.is

 

 


Bílakjarninn
Bílakjarninn