Bygg
Bygg

Íþróttir

Föstudagur 2. janúar 2004 kl. 10:58

Metaregn hjá ÍRB

Sundmenn úr röðum ÍRB settu þriðjudaginn 30. desember 5 aldursflokkamet. Meyjasveit félagsins með þær Elínu Ólu Klemenzdóttur ´91, Soffíu Klemenzdóttur ´93, Marínu Hrund Jónsdóttur´91 og Diljá Heimisdóttur ´92 innanborðs settu met í 4*50 m. bringusundi þegar þær syntu á tímanum 2:44,36 og 4*100 m. bringusundi sem þær syntu á 5:53,56. Stúlknasveit félagsins setti einnig 2 met, það fyrra í 4*100 m. fjórsundi Díana Ósk Halldórsdóttir ´86, Helena Ósk Ívarsdóttir ´90, Erla Dögg Haraldsdóttir ´88 og Sunna Pétursdóttir ´86 tími stúlknanna var 4:32,99 seinna met stúlknasveitarinnar var í 4*50 m. flugsundi en í þeirri sveit syntu Erla Dögg, Sunna, Díana Ósk og Karítas Heimisdóttir  ´90 og nýja metið hljóðar upp á 2:07,86. Síðast en ekki síst setti Guðni Emilsson ´89 drengjamet í 400 m. bringusundi þegar hann synti vegalengdina á 5:31,30, sannarlega glæsilegur endir á viðburðarríku ári ÍRB sundmanna.
Bílakjarninn
Bílakjarninn