Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Mér finnst körfubolti svo rosalega skemmtilegur
Ólafur hefur afrekað margt á sínum ferli en sjáfum finnst honum börnin sín vera hans stærstu afrek.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 23. október 2021 kl. 07:57

Mér finnst körfubolti svo rosalega skemmtilegur

Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson er einn af leikreyndari mönnum Subway-deildar karla. Hann hefur leikið 38 leiki fyrir Íslands hönd með A-landsliði karla auk þess að leika með liðum í Frakklandi og Þýskalandi. Ólafur svaraði nokkrum laufléttum spurningum Víkurfrétta í uppleggi vikunnar.

Nafn: Ólafur Ólafsson
Aldur: 30 ára
Treyja númer: 14
Staða á vellinum: Lítill framherji (Small Forward), kraftframherji (Power Forward)
Mottó: Taka einn dag í einu og vera þakklátur fyrir fólkið í lífinu þínu. Koma fram við náungann eins og þú vilt að náunginn komi fram við þig.


Hefurðu fasta rútínu á leikdegi?

„Eina sem ég geri er að passa að ég sé með næga orku á tanknum þegar leikurinn byrjar. Ég passa mig á að borða vel fjórum, fimm tímum fyrir leik og borða svo eitthvað á milli fram að leik, t.d. ávexti.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hvenær byrjaðir þú í körfu og af hverju valdirðu körfubolta?

„Ég byrjaði um fimm ára að æfa körfu. Það er mikill körfubolti í minni fjölskyldu, pabbi og öll systkini mín spiluðu körfu þannig það var einhvern veginn gefið að ég valdi körfu – en aðalástæðan er sú að mér finnst körfubolti svo rosalega skemmtilegur og finnst það ennþá í dag.“

Hver er besti körfuboltamaður allra tíma?

„Michael Jordan [NBA: Chicago Bulls].“

Hver er þín helsta fyrirmynd?

„Ég horfði mikið upp til bræðra minna.“

Hvert er eftirminnilegasta atvikið á ferlinum?

„Þegar við urðum Íslandsmeistarar tvö ár í röð. Svo verð ég að segja atvikið inn í Ásgarði þegar ég fór úr lið á ökklanum! Erfitt að gleyma því.“

Hver er besti samherjinn?

„Þeir eru svo margir gæti talið endalaust upp.“

Hver er erfiðasti andstæðingurinn?

„Hlynur Bæringsson.“

Hlynur Bæringsson í leik gegn Keflavík.


Hver eru markmið þín á þessu tímabili?

„Mín markmið er að sjálfsögðu að verða Íslands- og bikarmeistarar. Svo að hjálpa liðinu mínu að vera betra með hverjum degi.“

Hvert stefnir þú sem íþróttamaður?

„Alltaf á toppinn.“

Hvernig væri fimm manna úrvalslið þitt skipað með þér?

„C: Tryggvi Snær Hlinason (Basket Zaragoza), PF: Ólafur Ólafur (Grindavík), SF: Haukur Helgi Pálsson (Njarðvík), SG: Martin Hermannsson (Valencia), PG: Elvar Már Friðriksson (Antwerp Giants).“

Fjölskylda/maki:

„Katrín Ösp Eyberg Rúnarsdóttir, Írena Eyberg Ólafsdóttir og Ölver Óli Ólafsson.“

Hvert er þitt helsta afrek fyrir utan körfuboltann?

„Börnin mín.“

Áttu þér áhugamál fyrir utan körfuboltann?

„Fótbolti, píla og útivist.“

Ef þú ætlar að gera vel við þig, hvað gerirðu?

„Borða góðan mat, slappa af og eyða tíma með fjölskyldunni minni. “

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

„Saltfiskur.“

Ertu öflugur í eldhúsinu?

„Já, þegar ég ákveð að elda þá er ég „all in“ og það má enginn hjálpa mér.“

Býrðu yfir leyndum hæfileika?

„Já, ég syng ágætlega.“

Er eitthvað sem fer í taugarnar á þér?

„Óstundvísi. Þoli ekki að vera seinn eða þegar fólk mætir seint.“

Ólafi finnst ennþá rosalega gaman í körfubolta. Ivan Aurrecoechea Alcolado, liðsfélagi hans, virðist ekki skemmta sér síður.