Bygg
Bygg

Íþróttir

Meistarasunnudagur í Ljónagryfjunni
Föstudagur 13. október 2006 kl. 15:59

Meistarasunnudagur í Ljónagryfjunni

Á sunnudag fer fram keppni meistara meistaranna en þá eigast við Íslands- og bikarmeistarar í karla og kvennaflokki í körfuknattleik. Báðir leikirnir fara fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík.

Fyrri leikurinn er viðureign Íslandsmeistara Hauka og bikarmeistara ÍS í kvennaflokki. Leikurinn hefst kl. 17:00.

Í karlaflokki mætast Íslandsmeistarar Njarðvíkur og bikarmeistarar Grindavíkur kl. 19:15.

Venju samkvæmt rennur allur ágóðinn af keppni meistaranna til góðgerðarmála en að þessu sinni er það foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra barna sem njóta góðs af afrakstrinum.

 

VF-mynd/ Íslandsmeistarar Njarðvikur í karlaflokki leiktíðina 2005-2006

Bílakjarninn
Bílakjarninn