Meistararnir léku Grindvíkinga grátt
45 stiga tap i Vesturbænum
Grindvíkingar steinlágu gegn KR 118-73, í Domino's deild karla í körfubolta í gær. Grindvíkingar léku án útlendings og lykilleikmanna sem nokkrir glíma við meiðsli. KR hafði yfirhöndina allt frá upphafi en Grindvíkingar voru sérlega daprir í síðari hálfleik, þar sem þeir skoruðu aðeins 29 stig. Tölfræði úr leiknum má sjá hér að neðan.
KR-Grindavík 118-73 (32-26, 23-18, 36-12, 27-17)
Grindavík: Oddur Rúnar Kristjánsson 15, Ólafur Ólafsson 13/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/6 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 9/4 fráköst, Hilmir Kristjánsson 8, Björn Steinar Brynjólfsson 5, Hinrik Guðbjartsson 4, Magnús Þór Gunnarsson 4/5 stoðsendingar, Kristófer Breki Gylfason 2, Jens Valgeir Óskarsson 2, Magnús Már Ellertsson 1, Nökkvi Harðarson 0.
Dómarar: Leifur S. Gardarsson, Kristinn Óskarsson, Einar Þór Skarphéðinsson